Prófíll

  • Nafn: Hulda Margrét ;]
  • Netfang: hulda11@hotmail.com
  • Stađur: HÚNAVATNSHREPPUR

Auglýsing

Könnun

Rugludallur?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Allir ađ svara ;D

02. október 2006 klukkan 02:17
ég nenni ekki að blogga svo að ég setti hérna bara nokkrar spurningar sem þið eigið endilega að svara!


Ég er?

Hálviti?
Asni?
Kjáni?
Sexy?
Ljót?
Brjálæðingur?
Sæt?
Fúl?
Goth?
Crazy?
Vinaleg?
Þögul?
Sjálfselsk?
Vond?
Vitur?
Heimsk?
Feimin?
Skrýtin?
Vinur?
Meira en vinur?
Treystandi?
Leiðinleg?
Falleg?
Ruglandi?
Fyndin?
Kát?
Cool?
Töff?
versti óvinur þinn?
góð manneskja?
vond manneskja?
tilfinningar laus?

Spurningar:

Síminn minn er?
Er ég á föstu?
Hvað er msnið mitt?
Hvenær á ég afmæli?
Hver er bezti vinur minn?
Hver er bezta vinkona mín?
Hvar hittumst við fyrst?
Hefurðu einhvern tíma dreymt um mig?
Lýstu mér í 4-7 orðum?
Ef þú mættir spyrja mig af hverju sem er , hverju mindirðu spyrja mig að ?



Persónulegar upplýsingar:
Ég er _________ stelpan sem þú veist um!
Mindiru vilja kyssa mig?
Hefurðu einhvern timann verið hrifin(n) af mér?

Hulda Margrét ;]
1 athugasemd

jćja!

29. september 2006 klukkan 21:12

Er ekki komin tími á það að blogga hehe! Allavegana þá ætla ég bara að byrja á því að segja frá bekkjarkvöldinu sem var á miðvikudag það var mjög gaman á því en allavegana þá byrjaði bara venjulegur skóladagurég ætla ekkert að segja frá því frekar en já svo byrjaði aðal stuðið.Þannig var að það var kaffi bara strax eftir skóla það og svo fórum við og lærðum pínu svo fórum við í feluleik ég, Bjarni,Valur,Sigurveig og Eyþór ég Valur og Eyþór ákváðum að fela okkur á kvennaklósettinu hehe svo biðum við í svolítinn tíma og hehe svo héldum við að hann væri að koma og finna okkur en þá var þetta Birgitta að fara á klósettið og svipurinn á henni þegar hún opnaðu og ég og Valur sátum á einu kósetti og Eyþór á hinu það var ekkert smá fyndið. Svo fórum við niður ogbjarni var hættur að leita.  Þá voru það íþróttirnar og við fórum fyrst í handbolta, en það leistist upp í einhverja vitleisu en þá fórum við bara í brennó og það var bara fjör mittlið vann einu sinni og hitt liðið einu sinni. við fórum svo í sund og vorum þar öll í einn klukkutíma eða eitthvað og ég,Jón og Bjarni vorum þarna eitthvað bara að slaka á í hálftíma í viðbót eftir að allir voru farnir uppúr það var gaggjað kósí. Svo fórum við upp í mat og fórum svo í sing star og töluðum saman og eitthvað svo var þetta bara búið. Ég fór svo bara heim að sofa.

Já svo í gær þá var stærðfræðidagurinn  og eins og venjulega þá var farið í ratleik og reiknað eithvað fullt af dæmum og gert eitthvað gaman, ég var með Maríu og Hafdísi í hóp.svo var Norðrænaskólahlaupið ég fór 5km  og var á undan Gunnari og rétt á eftir Halldóri og Simma sem fóru líka fimm er mjög montin. Svo gerði ég nú ekki mikið meira þann dag, nema að fara heim og læra.

Í dag þá var bara mjögvenjulegur skóladagur bara mjög gaman henn leið samt óvenju hratt við fórum bara í ensku tíma hjá Valgerði og etthvað,umsjáon en Gunnþóra var ekki þannig að við löbbuðum bara niður að vatni með Mílani það var stuð svo var timi hjá Orra,sund ,matur og svo tveir tímar aar náttúrufræði svo for ég bara heim það var nú ekki meira.Ég þarfa að fara að fara þannig að bæbæ "stórt knús" kveðja ég !

Hulda Margrét ;]
1 athugasemd

Göngurnar yfirstađnar!

13. september 2006 klukkan 23:19

Ok eins og ég sagði hérna í fyrra bloggi þá fór ég í göngur það var sko fjör, ekkert smá. Þetta eru mínar aðrar göngur og ég hef skemmt mér í þeim báðum og báðar allt öðruvísi en ég komst að því að göngur eru alltaf göngur, það er alltaf gaman. Ok en það sem ég gerði var svo sem ekki mikið annað en að sitja á hestbaki og sofa en ég lenti í ýmsu á meðan. Sko við vöknuðum um 5:00 þá átti að troða í sig morgunmat svo að maður hefði einhverja næringu yfir daginn svo tók maður sér nesti og allt það Óli var að depast úr stressi fyrir mína hönd og stressaði mig upp, hann ver bara endalaust eitthvað "Hulda þú mátt ekki verða of sein og þú mátt ekki gleyma neinu og vertu fljót að klæða þig, ertu að vera búin" en samt var ég búina að taka mig til meira en hann. Já svo fórum við niður í hesthús og Austari gangnamennirnir lögðu á og þeir al vestustu, ég var vestan meginn en samt eiginlega á miðunni þannig að ég og einhverjir fóru bara heim í Hveravell í kaffi og hvíldum okkur í smá stund en þó ekki nema í svona fimm til tíu mínútur svo fórum við niður í hesthús og lögðum á og eihverjir fóru eitthvað vestur og við þurfturm að bíða eftir að þeir væru komnir á sína staði, en það fór í einhvað rugl og við þurftum að bíða þar í einhverja 3 klukkutíma eða eitthvað álíka. En svo á endanum höfðum við okkur af stað og löbbuðum þarna nokkur af stað og Gummi Sveins og Geiri Blöndal voru þarna svona 2 m fyrir aftan mig ,eitthvað að tala saman svo heyrði ég í Geira segja Kristín og alltí lagi með það og hélt að hann væri eitthvað að segja Gumma Sveins sögu svo endur tóka hann aðeins hærra og svo aftur og svo kallaði hann  KRISTÍN  go gafst alveg upp og spurði Gumma Sveins hvort að ég væri heyrnarlaus, þá svarði Gummi Sveins "HA ertu að reyna að tala við hana það er ekki von að hún heyri ekki hún heitir Hulda"þá fattaði ég nátturulega að hann var að reyna að tala við mig, svo reyndi hann ekki að tala við mig  fyrr en svona fimm mínutum seinna. Svo héldum við áfram að ganga eitthvað svo allt í einu heyrðist ægilegur skarkali og öll hrossin fældust  og svo sáum við bara Gumma Sveins liggjand killiflatan  með andlitið í jörðinni, svo stóð hann upp og sagði rólega og var frekar alverlegur á svipinn "Hver átti þennan stein?"það ver geggjað fyndið að sjá það. Svo var þetta bara frekar rólegt eftir það og við skiptum hópnu og vorum á göngum allveg þangað til u.þ.b.klukkan að verða 7-8 og ég fór bara beinustu leið í heita pottinn það var yndislegt. svo kom mamma með tíkina mína þarna um kvöldið og ég átti að smala með henni daginn eftir, í fyrsta skipti.

Þá rann annar dagurinn upp, það var vakið um svona fimm leitið og maður tók sig bara til eins og venjulega og við fórum og lögðum á niðri í hesthúsi. En núna gekk allt fljótar fyrir sig því að við áttum að vera komin í Kúluhvísl um hádegi og það ver öll leiðin sem við riðum daginn áður. Við komum í Kúluhvísl á ágætum tíma svo héldum við áfram þá var ég með tíkina mína, hún var allgjör snilld sko hún hlýddi öllu sem ég sagði og það ver bara geggjað ég var rosalega hrædd um að lenda í einhverju veseni með hana en svo var ekki hún var bara yndisleg. Það ver líka rosalega heitt þarna það ver rosalega gott veður sko það var 10 -15 stiga hiti það var allveg ólísanlegt og það var líka allan daginn allveg frá morgni til kvölds. Ég fór eiginlega bara strax að sofa eftir daginn ég var svo þreytt og ég var ekkert smá montinn af tíkinni minni.

Og svo rann einn enn dagurinn upp og þetta er talinn léttasti dagurinn. Það var lagt af stað nokkuð fljótlega eftir að við vöknuðum en ég var send með austurmönnunum til að standa á einhverju ristarhliði á Kolkustíflu. Og stóð þar í heila þrjá klukkutíma og beið þá var gott að vera þolinmóð, svo komu mennirnir og ég bættist bara inní röðina og var nærst skurðinum og vötnunum og nærst Gumma Sveins það ver bara andskoti gaman svo var alltaf ein rolla sem lagðist alltaf á kantinn á skurðinum og sko bakkarnir á honum eru þannig að þeir geta bara dottið undan manni ef maður fer allt of utarlega og ef maður dettur ofan í skurðinn er maður gott sem dauður það er svo mikill straumur í honum. En þannig að ég reyndi bara að reka á hana og ætlaði að ná henni þegar hún kæmi aðeins af bakkanum en nei, nei það gerði hún aldrei. En það bjargaðist allt því að Gummi Sveins kom og sagði að nú skildi ég fera með fram skurðinum og stugga féinu vestur og ég átti að hlaupa Fiskilækjaflánna þá allavegana losnaði ég við að drösla henni upp á veg. Og því þurfti ég að sleppa hestunum og treysta því að þeir mindu bara standa þarna rólegir en allt gerðist heldur en ekki þeir lögðu af stað og voru bara á leiðinni heim en Jonni á Hæli bjargaði mér algjörlega. Hann greyp hestana fyrir mig sem betur fer, hann fékk líka vel borgað með einni kókómjólk. Við komum svo á leiðar enda á met tíman austur mennirnir lentu í einhverjum vandræðum og voru mjög seinir. Svo komum við upp í Áfanga og mér ver hælt af 4 fullorðnum vönum gangna mönnu og þeir sögðu að ég væri mjög flink og hefði mikið vit á smalamennsku og yrði topp gangnamaður þegar ég yrði eldri og svo voru líka einhverjir sem sögðu Helga bróður þetta :D Svo var sungið og spjallað og var bara gaman ég lofaði Gumma Sveins að vera búin að læra allar  gangna vísurnar fyrir næsta ár.Svo for ég ekki að sofa fyrr en klukkan 1 en ég sofnaði ekki fyrr en 1:30-2:00.

Nú var það seinasti dagurinn það var bara vaknað á sama tíma og venjulega ég hélt að þessi dagur yrði freka auðveldur en hann ver frekar erfirður, því að það ver einhver Þýsk manneskja sem að var næst mér hún var bara aukamaður en hún var svo mikið fyrir ég þurfti að smala fyrir hana og manneskjuna sem var fyrir ofan hana og svo nokkurnveginn fyrir Ægi, svo voru hestarnir voru svolítið þreyttir og pirraðir og nenntu þessu ekki, þannig að það gekk svolítið illa. Svo rákum við þetta bara í görnina og í punginn uppi á Heigarðaás. Svo fórum við niður dalinn og ég hitt Helgu Dögg og Daða þar svo fóru þau eitthvað þegar við komum í Selið og ég hélt áfram að smala því að ég mátti ekki gleyma að ég var enn á göngum. Þannig að ég hélt bara áfram að reka, talði smá við Andreeu fyrrverandi vinnukonu á Guðlaugsstöðum. Svo heyrði ég bara kallað á mig "Hulda þarna ertu ég er búin að vera að leita að þer út um allt" svo sá ég hver þetta var, þá var þetta María. Svo vorum við bara samn að reka og hún Marí var sko að fíla þetta í tætlur það var ekki fyndið. Svo hittum við einn fullan kall hann bauð okkur te sko hann sagði þetta svona "má ekki bjóða ykkur te dömur" ég og María vorum allveg nei takk þá kom hann , lagðist á hestinn og sagði "þá fer ég bara að sofa ". Svo forum við bara, en svo vorum við alltaf að hitta hann. Eins og þegar við vorum allveg að koma niður þá sko datt ég, ég var að bakka og bakkaði á þúfu og datt og´María og hann hlógu að mér og voru að gera grín að mér og sögðu að ég væri full en ég hafði ekki drukkið dropa en allavegana þá eftir smá stund datt hún María líka og ÞÁ hló ég og kallinn líka,svo sagði hann að hann væri ekkert fullur miðað við okkur, (ég tek það fram við drukkum ekki neitt) því að hann hafði ekki dottið neitt en svo bara rétt eftir að hann sagði það þá datt hann, og við hlóum ekkert smá ,og til þess að afsaka sig sagði hann "ú fallegt blóm " það ver geggjað fyndið. Svo komum við bara niður ég talaði smá við eitthvað fólk þarna og svo fórum við bara heim og ég fór bara að sofa.

Nú tal ég mig búna að segja allveg ágætlaga frá göngunum! Og bæbæ!

Hulda Margrét ;]
5 athugasemdir

Lćra, lćra,lćra!!

01. september 2006 klukkan 20:48
Nú ætla ég að gera örstutt blogg, sko nú er ég að fara í mínar aðrar göngur og hlakka mikið til en til þess að hafa námið í lagi þá er ég bara að fara að vera lærandi um helgina ég á eftri einhverjar tíu bls í stærðfræði og eitthvað fleira þannig að það er nóg að gera hjá mér um helgina, plús að ég þarf að taka til dótið fyrir göngur.  En á aðra höndina kvíð ég pínu fyrir að fara því að pabbi verður ekki með en Helgi og Óli verða þarna þannig að það er í góðu lagi.Það var líka bara geggjað í fyrra, þetta er svo holt og þetta er líka allt öðru vísi en maður heldur. En ég ætlaði bara segja þetta svo að þið haldið ekki að ég sé löt og nenni ekki að blogga. Bæbæ!!Heyrumst eftir viku!! 
Hulda Margrét ;]
3 athugasemdir

Skólinn er byrjađur!

30. ágúst 2006 klukkan 01:57
Nú er blessaður skólinn byrjaður á fullu og ég komin í 10.bekk það er nokkuð cool! Sko í vetur er ég búin að setja mér markmið ég ætla að einbeita mér að náminu á fullu, sko meira á fullu en ég hef gert alltaf þó mér finnist það þó nokkuð. Það var líka þannig að ég varð nokkuð stressuð vegna þess að Gunnþóra hélt ræðu um hvað þetta ár væri merkilegt ár í lífi okkar. Ég ver löngu búin að átta mig á því, en þegar ég fer að hugsa þáhugsa ég þvílikt mikið sko ég fór að pæla ef mér gengur ekki vel á samræmduprófunum þá er kemt ég ekki í góðan menntaskóla (MA) og þá get ég ekki orðið það sem mig langar til að verða (dýralæknir) og þá gæti ég endað á því að verða svona mannseskja sem að vinnur í sjoppu og situr við búðarkassa allan daginn, ég er ekki að segja að þaðsé eitthvað ömurlegt en mig langar bara ekki til að vera svoleiðis. Þetta var ég að hugsa í allan gærdag í skólanum þangað til að hann Halldór bauð mér að koma á fjórhjól og þaðvar mjög gaman hann bjargaði deginum hjá mér. Svo fórum við á fjórhjól og svo elduðum við, ég OG Halldór, lambakjöt að hætti Halldórs á meðan þetta var í ofninum þá fórum við og fundum stað fyrir minkagildru það var gaman því að sjálfsögðu þá fórum við á fjórhjólinu. Í þessum leiðangri okkar þá fundum við hrafnshreiður og tókum hafmeyju myndir af Halldóri, við vorum sko niður við á. Svo var grjót þarna í ánni sem maður gat farið og setið á, þar tókum við myndirnar, en þann stein nefndum við Huldustein! Svo eftir þetta allt saman fórum við og fengum okkur sér rétt okkar! Svo horfðum við smá á King Kong og svo fór ég heim að sofa!Já svo í dag var bara gaman sko ég stillti vekjarklukkuna mína á 7:00 en svo vaknaði ég ekki við hana fyrr en um 7:25 og skólabíllin kemur um 7:30 eða eitthvað um það bil þannig að ég skellti mér bara í fötin og allt það svo fór ég út í skóla bíl, ég var til akkurat þegar hann kom. Svo kom skólabíllinn þar var ískalt og ég átti bara erfitt að vera þar inni í þessar 45 mín sem ég var þarna að komast inn í skólann en þar var líka eins ískalt og í bínum. Svo hófst bara venjulegur skóladagur og ekkert mikið af honum að segja nema að hún María hún slasaði sig þ.a.s. hún tognaði á fæti og þarf að ganga með hækjur núna. En svo fór ég bara heim og lærði og var svo bara að hlusta á tónlist og hitt og þetta. Mikið fjör hjá mér. Ég hlakka geggjað til þessa veturs.En er ég hætt að blaðra og farin !
Hulda Margrét ;]
2 athugasemdir

Gobbidí,gobb!

27. ágúst 2006 klukkan 18:07
Já í gær gerði ég ekki mikið annað en að vera á hestbaki það var mjög gaman Helga frænka mín
kom og hennar fjölkylda og við voru bara á hestbaki allan daginn.Þannig var að við vöknuðum
bara á svona venjulegum tíma. Svo var lagt á hestana og haldið af stað við riðum að Bollastöðum
og til baka. Á leiðinni að Bollastöðum þá stoppuðum við þrisvar eða eitthvað og í eitt skiptið þá
stoppuðum við til að fá okkur að eta svo fórum við bara upp í Bollastaði en allavegana þá er
vegurinn þangað þannig að hann er finnst mer allveg á brúninni og maður sér bara beint ofan í
ánna en ég vorkenndi mömmu frænku minnar því að hesturinn vildi alltaf vera á brúninni og hún
þakkaði guði fyrir þegar við komum upp í Bollastaði. Svo þegar við komum niður í Eyvindastaði
aftur þá var okkur öllum boðið í kaffi en ég held að þau hafi ekki vitað hvað við vorum mörg en
þeim var svo sem allveg sama, við vorum eitthvað um 15. við þáðu auðvitað kaffið og vorum þar
á maðan að skúrinn gekk yfir svo lögðum við af stað heim ég tók örugglega berstu merina á
bænum það var bara fínt hún tölti með mig allan tíman, en Helga fór á Munað hann er viljugasti
hestur á bænum það se frekar erfitt að hald í taumana, en Helga réði ekki allveg við hann og
missti stjórn fór á svona svart, þunnt, plaströr og Hesturinn fældist og hún datt af baki. Svo fórum
við og náðum hestinum pabbi hennar skipti við hana og hún hélt áfram. Eftir smástumd fór að rigna
og það var sko allgjör helli demba. Svo þegar ég kom heim fór ég í heita sturtu og hrein og þur föt.
Það var gott.
Svo ver hamborgara veirsla í Setrinu s.s. húsi afa og Sigrúnar allir fóru þangað og fengu
sér að borða. Þegar ég og Helga komum heim þá ætluðum við að setjast niður og horfa á Tootsi en
Helga sofnaði áður en að myndin byrjaði og ég sofnaði rétt þegar gamanið var að byrja, en það
skrítna var það að ég sofnaði í stólnum við sjónvarpið an vaknaði upp í rúminu mínu. dálítið fyndið.
En nú er ég að fara að fara á skóla setningu pabba míns þannig að ég verð að fara hætta þessari
vitleisu.




Hulda Margrét ;]
Engin athugasemd

Skólinn er ađ byrja jibbíííí

26. ágúst 2006 klukkan 02:55

Halló nú er ég í stuði, sko þannig var að ég fór á skólasetningu fjör á henni skemmtilegar ræður og allt það. En allavegana þá hitti ég Gunnar og Val og Bjarna svo er einhver ný stelpa að koma í bekkinn hún er á húnstöðum það er fjör.Svo fórum við í kaffi og fengu okkur brauð og eitthvað smotterí.  Hehe sko Edda var þarna líka það var geggjað fyndið Bjarni var farinn út og Edda spurði hvort að amma bjarna héti ekki Gerður, en ég og Valur heyrðum hana segja er amma hans Bjarna ekki geðveik, og ég og Valur allveg NEI, já amma hans Bjarna er á geðveikrahæli og hlógum pínu. Og Edda var alveg HA hvað eigið þiði við ég var að spurja hvort að hún héti ekki Gerður. Og svo hlógum við öll svolítið þetta var svolítið fyndiðHlæjandi. Svo lá leið mín niður á Blönduós að kaupa skólabækur það var ágætt líka, þar hitti ég Val og Bjarna aftur svo vorum við í klessu þarni tíu í skólabókasvæðinu á Blönduósi og fyrir þá sem ekki vita þá er heldur þrönkt þar og gekk heldur illa að finna það sem við þurftum en það hafðist á endanum. Svo kom ég heim og tók mína skóla bækur frá Braga og svo fór ég beinustu leið að mála glugga  sem var einhvernstaðar lengst uppi í rassgati á húsi þeirra afa og Sigrúnu. Það var svo fyndið að sjá tíkina mína þegar ég var að mála ég var svo hátt uppi og hún var svo hrædd um mig það var svo fyndið að sjá hana, hún hoppaði og gelti, æ það var svo sætt.Skömmustulegur Þar með var dagurinn minn búinn.

Svo ætli að ég verði ekki að segja smá frá Reykjarvíkur ferðinni þannig var að eg fór á förstu dag og kom til Reykjavíkur um kvöldið ég fór þá bara beinustu leið til frænku minnar Helgu í Grafarvoginum fórum svo bara að sofa töluðum svolítið fyrst. Svo vaknaði ég bara um 9:00 leitið á laugar deginum og mér var boðið að vera með  í hlaupi þarna raykjavíkur maraþoni Glitnis og hljóp Þrjá kílómetra  það var gott og hressandi það er ekki mikið mál að hlaupa þrjá  en guð hvað ég vorkenndi þeim sem hlupu heilt maraþon það er hlutur sem ég á aldrei eftir að gera.ÓákveðinnEn svo fór ég í kringluna og keypti mér slatta ég verslaði fyrir 14000 kr. enda vantaði mig eitthvað nýtt í fata skápinn minn. Við vorum þarna merst allan daginn það var bara fjör svo fórum við bar heim til Helgu frænku minnar og gerðum okkur til fyrir ættarmóti og að sjálfsögðu fór égí eitthvað af fötum sem ég keypti. Það var bara fjör í veirslunni eða á ættarmótinu öllu heldur. Svo var haldin flugeldasýning niðri við höfnina og hún var rosalega flott við vorum líka í frábæru útsýni. Svo lauk þessu öllu saman um 1:00 leitið eða eitthvað og þá fór ég heim til frænku minnar, horfðum eitthvað svolítið á sjónvarp og fórum svo að sofa svo sváfum við til kl 12:00 eða eitthvað, þa´voru mamm og pabbi komin að sækja mig og við fórum til Palla Gunnars bróðurs mömmu. Hann á litla stelpu rosalega sæta hún er allavegana mjög brosmyld hún er ekki nema tveggja til þriggja mánaða það var rosalega sætta að lát hana brosa. Svo fórum við bara heim og vorum komin um 6 -7 leitið. Þannig var mín Reykjavíkurferð.

Nú tel ég að þetta sé orðið gott bless og takk!

Hulda Margrét ;]
1 athugasemd

Leiđinni í bćinn!!

18. ágúst 2006 klukkan 04:01

Hellú hvað segist vitið þið hvað ég er að fara til Reykjavíkur og það er sko mikið fyrir mína fjölskyldu mamma hatar Reykjavík og þess vegna´í flest skipti sem ég fer þangað þá fer ég ein en ekki núna. Ég ætla að kaupa mér einhver föt fyrir peninginn sem ég fékk í laun fyrir að mála húsið hjá afa það var ekkert smá mikill peningur sem ég fékk , það var 1500 kall. En allavegana þá hlakka ég til.

Ég gerði slatta í dag en ekkert gagnlegt enda er ekkert að gera í búskap og mér fynnst það leiðinlegt sko eftir að við hættum með kýrnar þá er ekkert að gera á sumrin og mér fyndst gaman að vinna yfirleitt, mig vantar kýr ;( En allavegana þá vaknaði ég frekar seint og þá var ég spurð hvort að ég vildi fara í bíltúr með fjölskyldunni , ég hafði ekkert betra að gera þannig að ég fór bara með og það var bara nokkuð gaman´. Við fórum upp á heiði upp í Galtarból að kíkja á við bygginuna og þar var tekið val á móti okkur og okkur var boðið í kaffi hjá Fúsa og henni. fórum svo níðu í svartárdalinn og dóluðum bara þar í gegn svo. stoppuðum þarna fyrir ofan Fossa og skoðuðum þar, rosalega fallegt þar!! svo keyrðum við dalinn hann er líka fallegur eins og markt hérna í Austur-Húnavatnssýslunni svo enduðum við daginn á því að fara órður í Varmahlíð til að fá okkur að borða. til þess að þurfa ekki að vaska upp hehe. 

Þannig var nú það!! ég er búin að setja fleiri inn í vini þannig eða Dúllurnar mínar er að reyna að halda áfram eitthvað við þetta!! ég ætla ekki að blogga meira núna en kanski seinna bæbæ:Þ

Hulda Margrét ;]
1 athugasemd

Ég er ađ verđa stór !

16. ágúst 2006 klukkan 05:06
Hehe ég er búin að stækka um tvo -þrjá cm síðan ég var mæld seinast og það er ekki svo lankt síðan :D Alla vegana þá hef ég bara gert slatta í dag  og ég nenni ekki að segja frá gær deginum hann var ekkert spennandi.

Þanngi var það að ég vaknaði um 10 leitið var svo bara inni í herberginu mínu í hálftíma eitthvað að leika mér að gera eitthvað svo svimaði mig svo lítið þannig að ég lagðist niður og horfði aðeins á friends. Svo þegar sviminn batnaði þá fór ég og áhvað að ég skildi gera eitthvað gagnlegt eins og að baka eða eitthvað en þá fattaði ég að það var ekki til smjör þannig að ég fór aftur inni í sófa og horfði á einn þátt af friends. Svo kom hún móðir mín til mín og spurði hvort að ég vildi ekki nota saumavélina sem afi og Sigrún gáfu mér í afmælisgjöf mér fannst það bara ágætis hugmynd þannig að ég hófst handa og svo eftir mikla vinnu náði ég að búa mér til allveg ágætis buxur. þarna einhvern tímann í milli tíðinn þá teiknaði ég og kláraði myndina af honum langa afa mínum Pétri ég get kannski sett hana í albúm svo að þið getið séð hana einhvern tímann. En dagurinn var ekki búinn enn eftir allt þetta þá fór ég og tók aðeins til sópaði og þurkaði af og eitthvað svoleiðis. Þá var eftir aðal stuðið maður íþróttaæfingin þatta var seinasta æfinig sumarsinns þannig að það var gert ýmislegt skemmtilegt eins og það var farið í ratleik ég var foringinn í mínum hóp og að sjálf sögðu vann hann :D  Nei djók. Svo kom ég heim og fór að blogga. Hehe ég líka hitti Bjarna og talaði við hann hann gat ekki hlaupið og var ekki með í ratleiknum vegna þess að hann var meiddur í löppinni. En þá er það rúsínan í pylsu endanum, sko hann meiddist með því að hann ætlaði að sparka í blöðru en hinumeginn við blöðruna var þröskuldur þannig að hann nelgdi í þröskuldinn ég hló mig nánast máttlausa þegar ég heyrði þetta hehe :D   

Svo er hérna pæling er ég uppáþrengjandi sko maður veit aldrei eða er ég leiðinleg sko ég veit að einginn svarar mér heiðarlega eða allavagna þá mindi ég ekki svara heiðarlega ef ég væri spurð að þessu en málið er að fólk mindi ekki svara mér heiðarlega og hvernig get ég þá vitað?? En það er kannski ekki hollt að hugsa út í þetta. En sko ef ég er uppáþrengjanleg þá endilega segið mér það og ég skal vinna í því, því að að er það sem ég vil sísta af öllu er að gera vini mínum lífið leitt. 

Heimasætan kveður að sinni : )   
Hulda Margrét ;]
4 athugasemdir

HLAKKA TIL ŢESS AĐ SKÓLINN BYRJI!!

14. ágúst 2006 klukkan 03:53

Halló ég hlakka geggjað til til þess að skólinn byrji mig langar svo að hitta vini mína að það er ekki  eðlileg. Mig langar svo að bara vera innan um fólk sem skylur mig, sko ég er búin að vara innan um borgar fólk í allt sumar en það bara skylur mig ekki almennilega, þau skylja ekki hvað er daglegt brauð hjá mér. Og þegar maður spáir í þetta þá eru þetta tvennir ólíkir heimar. Málíð er að mér finnst maður þurfa að kunna að vera með öðrum en þó að kunna að vera einn líka og mér finnst það skorta hjá mörgum svona borgar fólki. Eins og ég get allveg farið ein á klósettið og mér finnst bara verra að vita af einhverjum sem ég þekki nálæg mér á klósettinu ekki það að ég sé að fara að halda ræðu um það sem ég geri á klósettinu þá verð ég að viður kenna að mér fannnst dálítið skrítið á landsmóti að þurfa að bíða eftir frænkum mínum til þess að geta farið á klósettið. Ég er ekki að full yrða það að fólk sé svona allstaðar í borginni og það er örugglega eitthvað af svona fólki í sveitinni en það væri svo sem ekkert skrítið þó að þetta væri svona vegna þess að folk sem er alið upp í borg er bara vant að vera með fólki alltaf. Þetta var bara svona smá pæling endilega pælið í þessu !!

En nú ætla ég að segja í grófum dráttum hvað ég er búin að vera að bralla seinustu daga sko þannig var að á laugardag þá vaknaði ég frekar seint og ég vissi af torfærunni á Bönduósi þannig að ég sagði pabba frá því að það vantaði mjólk og eitthvað á Blönduósi og pabbi fattaði strax hvað ég vara að meina og hann bara fór með mig á torfæruna það var bara ágætt svo kom ég heim og þá voru Harpa og Óli bara inni og Hörpu langði út þannig að við fórum út í Ömmu garð og spiluðum rommí í svona einn og hálfan klukkutíma svo var matur og svo fórum horfðum við örlítið á sjónvarp og fórum svo bara að sofa.

Í dag þá gerði ég sko markt og mikið það var þannig að ég vaknaði við það að frændi minn kom í heimsókn og í Guðlaugstaðaættinni vantar ekki kjaftagenið og hann var hérna og talaði í svona 3 kl. tíma svo svo fór ég og rak hrossin niður í hesthús til þess að getað járnað þau en ég gerði það ekki heldur Helgi, Barbara og pabbi og ég var ekkert nema handlangari. Svo var ég þar lengi dags en þegar ég fór heim þá fór ég beinustu leið að elda eða hjálpa pabba að elda svo eftir að hafa eldað kvöldmatinn borðuðum við en í þann mund kom annar frændi minn af Guðlaugstaðaætt það var pabbi hennar Valdísar að koma að sækja hana þau voru svo bara hérna eitthvað framm eftri kvöldi og kjöftuðu saman svo fóru þau um hálf tíu leitið meira hef ég ekki frá að segja í dag blogga kanski eitthvað á morgunn hver veit!! 

Hulda Margrét ;]
2 athugasemdir